Björn Thoroddsen Band - Múlinn Jazzklúbbur
Miðvikudagur, 25. nóvember 2026 · 20:00Harpa · Reykjavík
Miðar frá
5.200 kr.
Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.
Lýsing
Lesa meira
Harpa - Björtuloft || 25. nóvember 2026
Björn Thoroddsen, gítar/söngur
Jón Rafnsson, bassi
Fúsi Óttars, trommur
Björn Thoroddsen gítarleikari hefur verið einn af atkvæðamestu tónlistarmönnum Íslands s.l ár og hefur hlotið ýmsar viðurkenningar á ferli sínum. Bjössi Thor, en það er hann yfirleitt kallaður, hefur verið að hasla sér völl í hinum stóra gítarheimi á síðustu árum og leikið með mörgum af þekktustu gítarleikum heims. Í þetta skipti kemur Bjössi fram tríói sínu sem er skipað Fúsa Óttars, trommuleikara og Jóni Rafnssyni bassaleikara. Bjössi fer yfir gítarsöguna og spilar og jafnvel syngur, nokkur af sínum uppáhalds lögum. Það verða líka sagðar sögur og ekkert dregið undan.