Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Afsakið Hlé!
Leikhús

Afsakið Hlé!

Föstudagur, 16. október 2026 · 20:00Gamla Borg - Grímsnes

Skoða upprunalega vefinnFrá 3.500 kr.

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Lýsing

Lesa meira

Frumsýning

Afsakið Hlé!

Fyrirtækið er komið á heljarþröm, forstjórinn búinn á því og morguninn lofar engu góðu.

Ævar Eiður ætlar þó ekki að gefast upp. Með aðstoðarmanninn sér við hlið reynir hann að halda í glansmyndina, bjarga því sem bjargað verður og sannfæra sjálfan sig um að allt sé enn undir stjórn.

Í Afsakið hlé! eftir Árna Ibsen leikstýrt af Lilju Nótt, mætast stórt egó, örvænting og óskýr mörk í grafalvarlegum gjaldþrotafarsa þar sem allt getur farið úr böndunum.

Sýnt er í Litla Borgarleikhúsinu í Gömlu Borg. Í þessu litla og sögufræga leikhúsrými eru leikarar og áhorfendur í návígi, sem gefur sýningunni sérstakan og persónulegan blæ.

Sætafjöldi er takmarkaður, svo tryggðu þér miða í tíma.