Óperudagar 2026: Portrait - Kurt Weill
Föstudagur, 30. október 2026 · 20:15Harpa · Reykjavík
Miðar frá
2.500 kr.
Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.
Lýsing
Lesa meira
Harpa - Norðurljós || 30. október 2026
Í tilefni af afmælisári þýska tónskáldsins Kurts Weills tóku söngkonurnar Sigríður Thorlacius og Hildigunnur Einarsdóttir saman fjölbreytta tónleikadagskrá með sönglögum og sviðstónlist frá ólíkum tímabilum á ferli hans. Dagskrána fluttu þær á tónlistarhátíðinni Við Djúpið 2025 og verður nú flutt á Óperudögum í Reykjavík. Nýjar útsetningar Þórðar Magnússonar fyrir söngkonurnar og hljómsveit skapa einstakan hljóðheim þar sem klassík og jazz mætast í verkum Weills, sungnum á þýsku, ensku, frönsku og íslensku.