Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Sirkusmolar II
Fjölskyldan

Sirkusmolar II

Fimmtudagur, 29. október 2026 · 20:00Tjarnarbíó · Reykjavík

Skoða upprunalega vefinnFrá 3.450 kr.

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Lýsing

Lesa meira

Frumsýning

Sirkusmolar

  • brakandi fersk nýsirkussýning þar sem hver moli kemur á óvart

Sirkuslistafélagið Hringleikur snýr aftur með aðra útgáfu af Sirkusmolum, stútfulla af nýjum atriðum! Í gegnum tungumál sirkuslistanna leikur listafólkið sér með myndir af mismögulegum veruleikum og hughrifum ólíkra framtíða.

Sýningaröðin Sirkusmolar veitir innsýn í það ferskasta úr íslensku sirkuslífi og veitir hérlendu sirkuslistafólki tækfæri til að setja á svið hugmyndir sínar og þróa nýtt efni og atriði - svo hér má sjá ferskustu kræsingar sirkusheimsins! Hvort sem er ljóðræna loftfimleika á heimsmælikvarða, skens og glens, ótrúlegan styrk eða þá bara eitthvað mjög skrítið - þá er aldrei að vita hvað kemur næst upp úr pokanum.

Sýningin hentar áhorfendum á öllum aldri og byggir takmarkað á töluðu máli.

Sirkuslistafólk - flytjendur og höfundar atriða: Thomas Burke, Bryndís Torfadóttir, Urður Ýrr Brynjólfsdóttir, Álfrún Haraldsdóttir, Alejandro Bencomo, Sophie Kass, Sally Cowdin, Jón Sigurður Gunnarsson

Listrænn stjórnandi: Lauren Charnow

Framleiðsla: Eyrún Ævarsdóttir og Thomas Burke

FjölskyldanLeikhús

Hvar

Tjarnarbíó

Tjarnargata 12, 101 Reykjavík, Reykjavík

Skoða alla viðburði á þessum stað