Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Aftur í viðburði
Hróðmar Sigurðsson kvartett - Múlinn Jazzklúbbur
Tónlist

Hróðmar Sigurðsson kvartett - Múlinn Jazzklúbbur

Miðvikudagur, 28. október 2026 · 20:00Harpa · Reykjavík

Skoða upprunalega vefinnFrá 5.200 kr.

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Lýsing

Lesa meira

Harpa - Björtuloft || 28. október 2026

Hróðmar Sigurðsson, gítar, pedal steel
Eiríkur Orri Ólafsson, trompet
Birgir Steinn Theodorsson, kontrabassi
Sólrún Mjöll Kjartansdóttir, trommur

Á tónleikum kvartettsins verður flutt tónlist Hróðmars, en hann hefur sent frá sér tvær plötur, Hróðmar Sigurðsson (2021) og +1 (2025). Hann vinnur nú að nýrri plötu fyrir kvartett og mun flytja töluvert af nýju efni á tónleikunum, sem væntanlegt er á þeirri plötu á næsta ári. Tónlistin fellur undir jazzregnhlífina, en þar má einnig greina áhrif úr rokktónlist, ambient og sálartónlist. Unnið er að miklu leyti með frjálsan spuna, þar sem hljómsveit Hróðmars gegnir mikilvægu hlutverki í útsetningu og mótun tónmálsins. Hróðmar Sigurðsson hefur hlotið viðurkenningu sem bæði hljóðfæraleikari og tónskáld. Hann var valinn „bjartasta vonin í jazz- og blústónlist“ á Íslensku tónlistarverðlaununum 2021 og hljómsveit hans hlaut jafnframt tilnefningu til verðlaunanna sem „besti flytjandinn“ á sömu hátíð.

Hvar

Harpa

Austurbakka 2, 101 Reykjavík, Reykjavík

Skoða alla viðburði á þessum stað