Fjórar Stjörnur - Heiðurstónleikar fjögurra dægurlaga goðsagna
Laugardagur, 7. nóvember 2026 · 21:00Bíóhöllin Akranesi · Akranes
Miðar frá
6.990 kr.
Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.
Lýsing
Lesa meira
Fjórar Stjörnur - Heiðurstónleikar fjögurra dægurlaga goðsagna
Við heiðrum minningu og tónlistararf fjögurra goðsagna íslenskrar tónlistarsögu með glæsilegum tónleikum í Bíóhöllinni á Akranesi. Björgvin Halldórsson, Gunnar Þórðarson, Magnús Eiríksson og Megas hafa hver á sinn hátt, haft djúpstæð áhrif á íslenska dægurtónlist og mótað tónlistarsögu þjóðarinnar í meira en hálfa öld.
Lög á borð við Tvær stjörnur, Vetrarsól, Þó líði ár og öld, Ég er á leiðinni og Vertu ekki að plata mig eru aðeins brot af þeim fjölmörgu perlum úr þeirra safni sem munu hljóma á tónleikunum.
Hljómsveit:
Birgir Þórisson - Hljómborð
Jakob Grétar Sigurðsson - Trommur
Heiðmar Eyjólfsson - Söngur og kassagítar
Kristján Grétarsson - Gítar
Sigurþór Þorgilsson - Bassi
Sérstakur gestur kvöldsins verður Svala Björgvinsdóttir.