Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
KK, Mugison & Jón Jónsson
Tónlist

KK, Mugison & Jón Jónsson

Föstudagur, 27. nóvember 2026 · 19:30Ytri-Njarðvíkurkirkja · Reykjanesbær

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Miðasala er ekki í boði sem stendur.

Lýsing

Lesa meira

KK, Mugison og Jón Jónsson sameinast enn og aftur í aðdraganda jóla og bjóða upp á einstaka tónleika sem hafa á undanförnum árum orðið að föstum lið hjá fjölmörgum á aðventunni.

Í ár fjölgar tónleikunum töluvert og komið verður við í 10 kirkjum víðsvegar um landið.

Á þessum tónleikum geta gestir átt von á blöndu af hlátri, hlýju, magnaðri tónlist og ógleymanlegri upplifun sem gera aðventuna enn betri.

Tónleikarnir hafa alla tíð verið uppseldir og notið mikilla vinsælda, enda fátítt að þessir listamenn stígi saman á svið. Það gæti því verið skynsamlegt að tryggja sér miða sem fyrst eftir að miðasalan hefst.

Venju samkvæmt verður með í för hinn hæfileikaríki Þorleifur Gaukur.

Forsala miða hefst 3. sept, en þeir sem eru á póstlista tix komast fram fyrir röð og geta keypt miða frá og með 1. sept

Miðaverð litlar 9.500 í forsölu - 11.500 við innganginn.

Hópabókanir:  [email protected]

Tónleikarnir verða án hlés og standa í 70 mínútur.

Ekki er selt í númeruð sæti heldur verður frjálst sætaval. Því mælum við eindregið með því með að mæta snemma til að ná góðum sætum.

Kirkjunar opnar 30 mín áður en að tónleikarnir hefast.

TónlistTónleikar

Hvar

Ytri-Njarðvíkurkirkja

Brekkustíg 13, 260 Reykjanesbær, Reykjanesbær

Skoða alla viðburði á þessum stað