Óperudagar 2026: Hin magnaða rödd Margrétar
Laugardagur, 31. október 2026 · 15:00Harpa · Reykjavík
Miðar frá
1.500 kr.
Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.
Lýsing
Lesa meira
Harpa - Norðurljós || 31. október 2026
Rödd Margrétar Hrafnsdóttur er ein magnaðasta rödd sem við á Óperudögum höfum heyrt – dramatísk, „djúsí“ og fær um að senda rafmagnaða strauma um hvert það rými sem hún hljómar í.
Á þessum tónleikum kanna Margrét og Ástríður Alda, einn okkar allra færasti píanisti, dramatísk verk sem hæfa rödd Margrétar og hljómburði Norðurljósa einstaklega vel. Pálína Jónsdóttir leikstjóri tekur þátt í sköpuninni og saman teygja þær á hinu hefðbundna tónleikaformi, leika sér með rýmið og dramatíkina og skapa flæðandi tónleikhús þar sem rödd, tónlist og leikur renna saman.