Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
27 - Ópera
Leikhús

27 - Ópera

Miðvikudagur, 18. nóvember 2026 · 20:00Borgarleikhúsið · Reykjavík

Skoða upprunalega vefinnFrá 7.950 kr.

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Lýsing

Lesa meira

5. sýning

Í hjarta Parísar verður lítil stofa að suðupotti nýrrar listar. Óperan 27 segir hrífandi ástarsögu Gertrude Stein og Alice B. Toklas, tveggja kvenna sem sköpuðu heimili, samfélag og skjól fyrir helstu listamenn tuttugustu aldar. Þar hittast Picasso, Matisse og Hemingway áður en heimurinn þekkir nöfn þeirra – og innan veggjanna takast á ástríða, metnaður, vinátta og hugmyndir sem eiga eftir að breyta listasögunni. Ricky Ian Gordon og Royce Vavrek flétta saman tónlist, húmor og hjartnæma sögusýn í aðgengilegri samtímaóperu um ástina sem lifir af stríð, átök og tímans þunga nið.

Uppsetningin er framleiðsla nýs íslensks óperukompanís sem heitir hinÓperan, en markmið þess er að auka sýnileika hinsegin fólks á óperusviðinu. Sjá nánar á www.hinoperan.is

Óperan 27 er styrkt af Sviðslistasjóði.

Athugið að sýningin er á ensku.

Flytjendur:

Íris Björk Gunnarsdóttir er Gertrude Stein

Herdís Anna Jónasdóttir er Alice B. Toklas

Eggert Reginn Kjartansson er Pablo Picasso o.fl.

Áslákur Ingvarsson er Leo Stein o.fl.

Bjarni Thor Kristinsson er Ernest Hemingway o.fl.

Listrænir stjórnendur:

Leikstjóri: Bjarni Snæbjörnsson

Tónlistarstjóri: Matthildur Anna Gísladóttir

Leikmynda-og ljósahönnun: Friðþjófur Þorsteinsson

Búningahönnuður: Andri Unnarsson

Sviðshreyfingar: Cameron Corbett

Leikgervi: Ray Milano

Hvar

Borgarleikhúsið

Listabraut 3, 103 Reykjavík, Reykjavík

Skoða alla viðburði á þessum stað