Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
TODMOBILE – HÁPUNKTAR
Tónlist

TODMOBILE – HÁPUNKTAR

Föstudagur, 13. nóvember 2026 · 20:00Harpa · Reykjavík

Skoða upprunalega vefinnFrá 5.990 kr.

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Lýsing

Lesa meira

Harpa - Eldborg || 13. nóvember 2026

Todmobile hlaut heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrr á árinu og býður nú til sérstakra hátíðartónleika þar sem farið verður yfir feril sveitarinnar, allt frá fyrstu árunum til dagsins í dag og allt þar á milli.

Hljómsveitina skipa þau Andrea Gylfadóttir, Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, Eyþór Arnalds, Eiður Arnarsson, Ólafur Hólm Einarsson og Kjartan Valdemarsson.

Sveitin verður ekki ein á ferð því með þeim verða Jónína Björt Gunnarsdóttir, Söngsveitin Filharmónía, Strokkvartettinn Siggi og Guðni Franzson.

Sérstakur gestur kvöldsins er Eyþór Ingi Gunnlaugsson sem hefur tekið þátt í mörgum stærstu tónleikaviðburðum sveitarinnar og hljóðritað með Todmobile tvær plötur.

Þessir tónleikar eru hátíð og þakkarvottur til þeirra fjölmörgu aðdáenda sem hafa fylgt Todmobile í gegnum áratugina. Kvöldið verður einstakt tækifæri til að upplifa

tónlist sveitarinnar í nýjum og glæsilegum búningi og um leið fagna þeirri viðurkenningu sem heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna eru.

Tryggðu þér miða strax.

TónlistTónleikar

Hvar

Harpa

Austurbakka 2, 101 Reykjavík, Reykjavík

Skoða alla viðburði á þessum stað