Kurtág - Bartók - Bach : Sígildir sunnudagar
Sunnudagur, 15. nóvember 2026 · 16:00Harpa · Reykjavík
Miðar frá
4.900 kr.
Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.
Lýsing
Lesa meira
Sif Margrét Tulinius fiðluleikari og píanóleikarinn Peter Máté flytja verk eftir György Kurtág, Béla Bartók og Johann Sebastian Bach í spennandi efnisskrá einleiksverka og samleiksverka.
Tónlist ungversku tónskáldanna Bartóks og Kurtágs sprettur úr ríkri miðevrópskri tónlistarhefð þar sem þjóðlagaarfur og nákvæmni í tónmáli koma saman en jafnframt var tónlist Bachs þeim báðum afar mikilvægur innblástur. Efnisskráin býður þannig upp á samtal milli einleiks og samleiks, hefðar, þjóðlagaarfs og nýsköpunar.
Efnisskrá
György Kurtág (1926- )
Signs, Games and Messages - frumflutningur á Íslandi
Jele, játékok és üzenetek
fyrir einleiksfiðlu
° Hommage à J.S.B.
° Postcard to Anna Keller
Anziksz Kellerannának
° Doloroso
Garzulyéknak
° Perpetuum mobile
Vadas Agnesek
° Népdalféle
° The Carenza Jig
° ... féerie d'automne ...
° In Nomine - all'ongherese
Damjanich emlékkö
Béla Bartók (1881-1945)
Sex rúmanskir dansar fyrir fiðlu og píanó
HLÉ
J.S. Bach (1685-1750)
Sónata í g-moll fyrir einleiksfiðlu
Adagio
Fuga
Siciliano
Presto
Béla Bartók (1881-1945)
Rapsódía nr. 1 fyrir fiðlu og píanó
Prima parte: Lassú
Seconda parte: Friss
Nemendum býðst að kaupa miðann á kr. 3000 í miðasölu Hörpu.
Sif Margrét Tulinius $50https://sifmargrettulinius.com
Peter Máté píanóleikari var fæddur í Tékkóslóvakíu en hann hefur verið búsettur á Íslandi frá árinu 1990. Peter lauk einleikara- og kennaramastersgráðu úr Tónlistarakademíunnni í Prag. Á námsárunum vann hann til margra verðlauna í heimalandi sínu og síðar í alþjóðlegum keppnum, svo sem í Vercelli og Enna á Ítalíu á árunum 1986 og 1989.
Peter hefur haldið einleikstónleika og tekið þátt í kammertónleikum (Tríó Reykjavíkur, Kammertríó Kópavogs, o.fl.) víða á Íslandi og farið í tónleikaferðir til Frakklands, Bretlands og Bandaríkjanna auk Austur-Evrópulanda.
Peter er prófessor Listaháskóla Íslands en kennir einnig píanó við Menntaskóla í tónlist. Hann hefur frumflutt mörg íslensk píanó- og kammerverk og hefur haldið fyrirlestra um íslenska píanótónlist erlendis. Heildarupptaka Peters á píanóverkum eftir John Speight var valin hljómplata ársins á Íslensku tónlistarverðlaunum 2021.
Peter hefur verið gestakennari margra erlenda tónlistarháskóla. (Budapest, Bolzano, Brussels, Chicago, Graz, Helsinki, Lyon, Modena, Oslo, Poznan, Riga, Stokkhólmur, Tallinn, o.fl.)