Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Aftur í viðburði
Óperudagar 2026: Hátíðargala - NOC + ELJA
Tónlist

Óperudagar 2026: Hátíðargala - NOC + ELJA

Laugardagur, 31. október 2026 · 18:00Harpa · Reykjavík

Skoða upprunalega vefinnFrá 1.500 kr.

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Lýsing

Lesa meira

Harpa - Norðurljós || 31. október 2026

Óperudagar bjóða til stórglæsilegra tónleika í flutningi Nordic Opera Choir og kammersveitarinnar Elju undir stjórn Ragnheiðar Ingunnar Jóhannsdóttur. Á efnisskránni er fjölbreytt og kraftmikil dagskrá þar sem hljóma nokkur af þekktustu kóratriðum óperusögunnar, ásamt einsöngsverkum og sjaldgæfari og spennandi perlum.

Áheyrendur fá að upplifa allt frá Kór sígaunanna (Il Trovatore) og Va, pensiero (Nabucco) eftir Verdi, þekktar aríur á borð við Habanera úr Carmen og hinn töfrandi Humming Chorus úr Madama Butterfly. Á dagskránni eru einnig glæsileg verk eftir m.a. Alexander Borodin, Kaiju Saariaho og Helenu Munktell.

Fram koma:

Nordic Opera Choir

Elja kammersveit

Stjórnandi: Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir

TónlistSviðslistir

Hvar

Harpa

Austurbakka 2, 101 Reykjavík, Reykjavík

Skoða alla viðburði á þessum stað