Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Aftur í viðburði
QUEENS OF THE STONE AGE - UPPSELT
Listir og menning

QUEENS OF THE STONE AGE - UPPSELT

Laugardagur, 24. október 2026 · 20:00Laugardalshöll · Reykjavík

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Miðasala er ekki í boði sem stendur.

Lýsing

Lesa meira

UPPSELT!

SPURT OG SVARAÐ

Sértónleikar, eingöngu fyrir Ísland, laugardaginn 24. október í Höllinni!

Það eru ekki margir viðburðir sem fá rokkaðdáendur til að staldra við. En þegar Queens of the Stone Age mæta til landsins eftir 25 ára bið er von á alvöru tónleikum

Það mætti segja að hér sé um að ræða langþráða endurfundi íslenskra rokkara við eina áhrifamestu rokksveit síðustu áratuga. Bandið hefur lengi viljað setja Ísland inn sem áfangastað á tónleikaferðum en ekki tekist. Þeir ákváðu að bíða ekki lengur og kýla á sérferð til Íslands. Þannig að hér er sannarlega um einstaka tónleika að ræða, settir sérstaklega upp fyrir Ísland og ekki partur af stærri túr.

QOTSA njóta sín best á sviðinu, eru þekktir fyrir magnaða tónleika og hafa aldrei verið betri. Það er því óhætt að lofa ógleymanlegu kvöldi.

Upphitun verður í höndum reykvísku sveitarinnar Virgin Orchestra sem hefur verið á mikilli siglingu síðustu ár, bæði hér heima og erlendis.

Ekki missa af sérstökum Íslands tónleikum, með Queens of the Stone Age, í Höllinni!

MIÐAVERÐ
Gull sæti:   49.990 kr. (gult á mynd)*
A+ sæti:     39.990 kr. (fjólublátt á mynd)
A sæti:       34.990 kr. (bleikt á mynd)
B sæti:       29.990 kr. (grænt á mynd)
Stæði:       25.990 kr. (fyrir framan svið)
Hjólastólasvæði: 12.995 kr. (pallur á gólfi)**

*Gull sæti fylgir drykkur og sérinngangur.
**Hjólastólasvæði eru seld tvö saman, þar sem annar miðinn er fyrir fylgdarfólk.

Sjá mynd af sal hér

Umsjón: Sena Live

Um Queens of the Stone Age
Queens of the Stone Age er skipuð þeim Joshua Homme, Troy Van Leeuwen, Michael Shuman, Dean Fertita og trommuleikaranum Jon Theodore. Á glæsilegum 30 ára ferli hefur sveitin skipað sér sess sem einkraftmesta og frumlegasta rödd rokksins. Krafturinn nýtur sín best á sviðinu, enda eru þeir þekktir fyrir að leggja allt í sölurnar á tónleikum sínum og hafa aldrei verið betri. Eins og NME orðaði það í nýlegri umfjöllun um Catacom túrinn þá eru þeir þessa dagana að “...ná nýjum hæðum!”.

QOTSA báðu sérstaklega um að fá að spila á Íslandi, mæta með gríðarlega orku og bestu lögin frá öllum ferlinum. Einstakt kvöld er í vændum.

Um Virgin Orchestra
Virgin Orchestra sækir innblástur í post-pönk, raftónlist, dreampop og hávaðarokk og fléttar saman í kraftmikinn og heillandi hljóm. Sveitina skipa þau Rún, Starri og Stefanía og hefur hún verið á mikilli siglingu undanfarin ár, bæði hér heima og erlendis, í kjölfar útgáfu Fragments árið 2023 og EP-plötunnar Let It Burn árið 2025.

Þau voru sérstaklega valin af QOTSA til að hita upp.

Hvar

Laugardalshöll

Engjavegur 8, 104 Reykjavík, Reykjavík

Skoða alla viðburði á þessum stað