Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Aftur í viðburði
Poga stjórnar Shostakovitsj - Sinfóníuhljómsveit Íslands
Tónlist

Poga stjórnar Shostakovitsj - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Fimmtudagur, 29. október 2026 · 19:30Harpa · Reykjavík

Skoða upprunalega vefinnFrá 3.100 kr.

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Lýsing

Lesa meira

Sinfóníuhljómsveit Íslands - Eldborg || 29. október 2026

Tvö tónverk sem takast á við hinstu rök tilverunnar eru viðfangsefni þessara hádrama-tísku tónleika. Eyja hinna dauðu er áhrifamikið tónaljóð eftir Rakhmanínov sem er innblásið af samnefndu málverki eftir Arnold Böcklin og Sinfónía nr. 13, „Babí Jar“, eftir Shostakovitsj er stórfenglegt verk fyrir bassasöngvara, karlakór og hljómsveit við ljóð eftir Jevgení Jevtúsjenko. Verkið er vitnisburður um siðferðisþrek og mannlega samkennd þar sem beisk kaldhæðni og djúp sorg takast á. Saman skapa þessi tvö meistaraverk sterka upplifun sem lætur engan ósnortinn. Bassasöngvarinn Alexander Roslavets er rísandi stjarna í óperuheiminum og hefur hvarvetna hlotið góðar viðtökur. Hljómsveitarstjórinn Andris Poga stjórnaði Sinfóníuhljómsveit Íslands á síðasta ári við góðar undirtektir.

Hljómsveitarstjóri
Andris Poga

Einsöngvari
Alexander Roslavets

Kórar
Karlakórinn Fóstbræður
Sönghópurinn Kyrja

Efnisskrá
Sergej Rakhmanínov Eyja Hinna Dauðu
Dmítríj Shostakovitsj Sinfónía Nr. 13 „Babí Jar“

Hvar

Harpa

Austurbakka 2, 101 Reykjavík, Reykjavík

Skoða alla viðburði á þessum stað