Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Ekki hugmynd
Leikhús

Ekki hugmynd

Laugardagur, 31. október 2026 · 20:00Borgarleikhúsið · Reykjavík

Skoða upprunalega vefinnFrá 7.200 kr.

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Lýsing

Lesa meira

Ekki hugmynd

Frumsýning: 30. janúar             Litla svið

Jæja hvað ætlarðu svo að verða?

Ekki hugmynd.

Hvað skuldarðu mikið í skatt?

Ekki hugmynd.

Hvað á leikritið að heita?

Ekki hugmynd.

Það er skelfileg stund í lífi hvers manns þegar tilveran hættir að vera hellað djamm og hótel mamma og verður virðisauki, viðbótarlífeyrissparnaður og almennur viðbjóður.

Snögglega breytist lífið í eitt stórt skyndipróf:

Heimsreisa eða háskólapróf?
Smokkur eða snudda?
Lán eða lífsvilji?

Ekki hugmynd er bráðfyndið gamanleikrit þar sem mannabörnin Arnór, Óli og Vigdís eru öll týnd á tímamótum og hafa ekki hugmynd um hvað þau eiga að gera. En með gríni, mis-heimspekilegum kenningum, söng og öllum tiltækum leikhústrixum ætla þau að finna út úr þessu og færa íslensku þjóðinni svar við ráðgátum lífsins!

Og hvert er svarið?

Eeeeeekki huuuuuuugmynd.

Ps. allir gestir fá að sjálfsögðu þátttökuverðlaun fyrir að mæta.

Gaflaraleikhúsið er þekkt fyrir stórskemmtilegar sýningar unnar lóðbeint upp úr íslenskum veruleika sem allir frá fermingu og fram á grafarbakkann geta haft gaman af. Þau settu síðast upp gamanleikinn gleðilega Tóma hamingju sem sýndur var fyrir troðfullu húsi allan síðasta vetur og uppskar að auki tvær tilnefningar til Grímunnar. Þau eru nú mætt aftur í Borgarleikhúsið með glænýtt grín til að gleðja okkur öll.

Höfundar og leikarar: Arnór Björnsson, Óli Gunnar Gunnarsson, Vigdís Hafliðadóttir

Leikstjórn: Egill Andrason

Tónlist og hljóðmynd: Vigdís Hafliðadóttir og Egill Andrason

Leikmynd og búningar: Bryndís Ósk Ingvarsdóttir

Ljósahönnun: Sölvi Dýrfjörð

Aðstoðaleikstjórn: Ásgrímur Gunnarsson

Dramatúrg: Björk Jakobsdóttir

Framkvæmdastjórn: Björk Jakobsdóttir og Gunnar Helgason

Markaðssetning: Björk Jakobsdóttir,, Gunnar Helgason,, Arnór Björnsson og Óli Gunnar Gunnarsson

Framleiðendur: Gaflaraleikhúsið í samstarfi við Borgarleikhúsið.

Sýningin er styrkt af Hafnarfjarðarbæ.

Hvar

Borgarleikhúsið

Listabraut 3, 103 Reykjavík, Reykjavík

Skoða alla viðburði á þessum stað