Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Aftur í viðburði
Psycho Bíótónleikar - SInfóníuhljómsveit Íslands
Tónlist

Psycho Bíótónleikar - SInfóníuhljómsveit Íslands

Fimmtudagur, 12. nóvember 2026 · 19:30Harpa · Reykjavík

Skoða upprunalega vefinnFrá 4.900 kr.

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Lýsing

Lesa meira

Sinfóníuhjómsveit Íslands - Eldborg || 12. nóvember 2026

Kvikmynd Alfreds Hitchcock, Psycho, frá árinu 1960 um örlagaríka heimsókn Marion Crane á Bates-gistihúsið í Kaliforníu er af mörgum talin til bestu bíómynda liðinnar aldar. Kvikmyndin var tilnefnd til fernra Óskarsverðlauna og nýtur enn gríðarlegra vinsælda þrátt fyrir að rúm 65 ár séu liðin frá frumsýningu hennar. Þar skiptir sköpum hin hrollvekjandi tónlist bandaríska tónskáldsins Bernards Herrmann. Hann samdi tónlist við einar sjö kvikmyndir Hitchcocks og er tónlistin við Psycho langþekktust. Hún er einvörðungu skrifuð fyrir strengjahljóðfæri hljómsveitarinnar og eru möguleikar þeirra kannaðir í þaula. Skerandi strengjahljómarnir í hinu fræga sturtu-atriði eiga eftir að fylgja áheyrendum dögum saman í kjölfar tónleikanna!

Ekki missa af Psycho í lifandi flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg. Myndin er bönnuð áhorfendum yngri en 16 ára.

Hljómsveitarstjóri
Ben Palmer

Psycho

Leikstjóri
Alfred Hitchcock

Tónlist
Bernard Herrmann

TónlistKvikmyndirTónleikar

Hvar

Harpa

Austurbakka 2, 101 Reykjavík, Reykjavík

Skoða alla viðburði á þessum stað