OASIS heiðurstónleikar
Laugardagur, 14. nóvember 2026 · 21:00Græni hatturinn, Akureyri
Miðar frá
7.900 kr.
Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.
Lýsing
Lesa meira
X 97.7 kynnir
OASIS heiðurstónleikar
35 ár eru nú liðin frá stofnun bresku hljómsveitarinnar OASIS í Manchester á Englandi. Sveitin sendi frá sér sjö breiðskífur á árunum 1994 til 2008 en lagði upp laupana árið 2009 eftir röð atvika milli forsprakka sveitarinnar, bræðranna Liam og Noel Gallagher. Hljómsveitin kom saman á síðasta ári og hélt í tónleikaferðalag víðsvegar um heiminn og komust færri að en vildu, svo ekki sé minna sagt. Margir Íslendingar sátu uppi með sárt ennið, enda sveitin aldrei heldur spilað á Íslandi yfir ferilinn.
Hópur íslenskra tónlistarmanna og aðdáenda sveitarinnar hefur því tekið sig saman og hyggst flytja öll bestu lög sveitarinnar með stælum á Græna Hattinum á Akureyri, Silfurtunglinu í Austurbæ í Reykjavík og í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Verður allt lagt í sölurnar, hækkað vel í og sungið sig hása en þó, í mesta bróðerni þar sem nostalgía tíunda áratugarins flæðir í gegnum ærandi gítara og einstaka kvöldstund sem vottar þessari stórkostlegu sveit virðingarvott og tekur hattinn ofan.
Hljómsveitina skipa:
Daníel Hjálmtýsson - söngur/slagverk Guðmundur Stefán Þorvaldsson - gítarHálfdán Árnason - bassiHeiðar Örn Kristjánsson - söngur/gítarHelgi Birgir Sigurðsson - trommurHelgi Rúnar Gunnarsson - gítarJón Ingimundarson - hljómborð
Það er 20 ára aldurstakmark á þennan viðburð.