Halldór Eldjárn - Tónleikasýning í Tjarnarbíó
mið., 14. okt. · GMT+0 – 20:00
Tjarnarbíó · Reykjavík
6.990 kr.
Sunnudagur, 8. nóvember 2026 · 15:00Tjarnarbíó · Reykjavík
Miðar frá
4.900 kr.
Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.
3. sýning
Barnaleikritið Heimsókn í leikhúsið hennar Thalíu er ferðalag inn í ævintýraheim leikhússins. Áhorfendur kynnast litríkum persónum sem vinna á bak við tjöldin og hitta leiklistargyðjuna Thalíu sem segir þeim frá töfrum leiklistarinnar. Þungamiðja verksins er leikhúsið sjálft og fólkið sem vinnur þar.
Áhorfendur rekast á leikhússtjórann, fá að fylgjast með leikaranum æfa leiktextann sinn og fá innsýn í vinnu leikstjórans, sminkunnar (förðunarmeistarans) og leikmynda- og búningahönnuðarins. Verkið hefst í anddyri leikhússins og ferðast með áhorfendur inn á leiksviðið þar sem óvæntir atburðir eiga sér stað. Í gegnum verkið kynnast ungir áhorfendur leikhúsinu og verða um leið þátttakendur í spennandi ævintýri þar sem drekar, prinsar og prinsessur koma við sögu.
Verkið hlaut styrk frá Sviðslistasjóði og List fyrir alla.
Aðstandendur:
Höfundur: Vigdís Gunnarsdóttir
Leikstjóri: Halldóra Björnsdóttir
Sviðsmynd og búningar: Rebekka A. Ingimundardóttir
Lýsing: Fjölnir Gíslason
Tónlist og leikhljóð: Íris Thorarins
Leikarar:
Halldóra Björnsdóttir
Sigríður Ásta Olgeirsdóttir
Tómas Geir Howser Harðarson
mið., 14. okt. · GMT+0 – 20:00
Tjarnarbíó · Reykjavík
6.990 kr.