Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Aftur í viðburði
Jón Jónsson | Af fingrum fram
Tónlist

Jón Jónsson | Af fingrum fram

Fimmtudagur, 15. október 2026 · 20:30Salurinn · Kópavogur

Skoða upprunalega vefinnFrá 7.900 kr.

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Lýsing

Lesa meira

Salurinn ||15. október, 2026

Tónlistarmaðurinn síglaði - og vinsæli  Jón Jónsson verður gestur nafna síns Jóns Ólafssonar í tónleikaröðinni Af fingrum fram í Salnum þann 15. október, 2026

Það er óhætt að segja að Jóni Ragnari Jónssyni sé ýmislegt til lista lagt. Í Versló var ekki þverfótað fyrr kappanum sem brilleraði í söngleikjauppfærslum skólans. Hann lék knattspyrnu með gullaldarliði FH í knattspyrnu og varð Íslandsmeistari með liðinu. Hans besta ár var þó auðvitað þegar hann lék sem lánsmaður með Þrótti Reykjavík.

Jón stundaði hagfræðinám í Bandaríkjunum og fór að koma fram með eigið efni sem tryggði honum erlendan plötusamning. Frægðarsól hans hefur engu að síður skinið skærast á Íslandi. Jón lofar fjöri enda ,,Iceguy“!

//

Tónleikaröðin Af fingrum fram hefur nú sitt 17. starfsár í Salnum í Kópavogi. Í þessari sívinsælu spjalltónleikaröð tekur Jón Ólafsson á móti fjölbreyttum hópi listafólks þar sem einlæg samtöl, skemmtilegar sögur úr tónlistarlífinu og lifandi flutningur ráða ríkjum og skapa þannig einstaka kvöldstund.

Jón Ólafsson er samur við sig þennan tónleikaveturinn og fær áfram til sín fjölbreyttan flokk listafólks í einlægt spjall og góða tóna.

Gestir Af fingrum fram tónleikaárið 2026-2027 eru eftirfarandi:

/ 2026 /

17. september 2026: Halli og Gói1. október 2026: Una Torfa15. október 2026: Jón Jónsson5. nóvember 2026: Jónas Sig26. nóvember 2026: Ragga Gísla

/ 2027 /

21. janúar 2027: Mugison11. febrúar 2027: Bríet11. mars 2027: Daníel Ágúst8. apríl 2027: Ólöf Arnalds6. maí 2027: Sóli Hólm

TónlistTónleikar

Hvar

Salurinn

Hamraborg 6, 200 Kópavogur, Kópavogur

Skoða alla viðburði á þessum stað