Fasteignamartröðin
Laugardagur, 31. október 2026 · 20:00Samkomuhúsið · Akureyri
Miðar frá
7.900 kr.
Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.
Lýsing
Lesa meira
8. sýning
Kómískur frumskógur húsnæðismarkaðarins.
Arnrún er á þrítugsaldri og þarf að finna sér nýtt þak yfir höfuðið eftir óvænt sambandsslit. Hún getur ekki flutt aftur í foreldrahús, líst illa á leigumarkaðinn og ákveður því að kaupa sína fyrstu íbúð. Við tekur grátbroslegt og fáránlegt ferðalag í gegnum frumskóg bankastarfsmanna, fasteignasala og lánardrottna.
Hér er á ferðinni beittur og meinfyndinn spegill á raunveruleika ungs fólks í dag, þar sem persónusköpun í anda Sex and the City mætir absúrdveröld Kafka.
Verkið, sem er eftir litháenska leikskáldið Gabrielė Labanauskaitė, var valið besta erlenda leikritið á stærstu leikritunarhátíð Þýskalands árið 2023.
Tegund: Grátbroslegur samtímaskáldskapur
Athugið: Aðeins sýnt í október og nóvember!