Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
no lemons no melon
Dans

no lemons no melon

Laugardagur, 14. nóvember 2026 · 15:00Tjarnarbíó · Reykjavík

Skoða upprunalega vefinnFrá 3.900 kr.

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Lýsing

Lesa meira

Reykjavik Dance Festival

Í heimi þar sem nútímasamskipti eru orðin að óstöðvandi flaumi ágengra skilaboða koma þráhyggjukenndar athafnir og vöktun í veg fyrir gagnstæða upplifun á borð við lyktir, hvíld, dok, ritúal og þögn. Getum við beitt tækjum og tólum sem ætluð eru til að magna upp hljóð til þess að endurbyggja hávaðann og nálgast þögnina?

Inga Huld Hákonardóttir og Yann Leguay vinna hér á mörkum danslistar og tónleika, og velta fyrir sér merkingu mögnunar með leik sínum að tækni sem ætlað er að auðvelda samskipti. Þannig kafa þau djúpt í hina árráttukenndu leit okkar að sífellt skilvirkari samskiptum.

no lemons no melon er þrungið löngun eftir þögn og its elusiveness. Hvernig getum við fundið þögnina sem við þörfnumst til þess að vinda ofan af okkur; þrátt fyrir hávaðann, eða kannski beinlínis fyrir tilstilli hans? Með því að gera hljóð sýnilegt og þögnina heyranlega leitast þau Inga og Yann við að skapa kyrrð í kaótískri veröld þar sem áreitið skellur sífellt á skilningarvitunum.

Hugmynd, sköpun og flutningur Inga Huld Hákonardóttir & Yann Leguay
Ljósahönnun Lucas Van Haesbroeck
Dramatúrgía Lina Schlager
Búningar Sofie Durnez External eye Samon Takahashi
Meðframleiðendur Kunstenwerkplaats, C-takt, HOROS Residencies STUK, Campo, Kunstenwerkplaats, Sláturhús Art Center
Yfirframleiðsla Caravan Production
Með stuðningi The Flemish Community & Reykjavíkurborg

Hluti af Iceland Moves 2026

Hvar

Tjarnarbíó

Tjarnargata 12, 101 Reykjavík, Reykjavík

Skoða alla viðburði á þessum stað