Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Svikasögur
Leikhús

Svikasögur

Sunnudagur, 18. október 2026 · 20:00Borgarleikhúsið · Reykjavík

Skoða upprunalega vefinnFrá 7.200 kr.

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Lýsing

Lesa meira

8. sýning

Árið er 1984 og Nanna stendur á þeim ómótstæðilegu og óbærilegu mörkum þess að vera barn og unglingur, Hún er líka milli tveggja elda þegar foreldrar hennar takast á og toga hana í ólíkar áttir. Hvernig er hægt að treysta fullorðnu fólki sem segir eitt en gerir annað? Hvort er raunverulega verra, að stela sígarettum eða halda framhjá?

María Reyndal er þekkt fyrir bráðfyndin og mannleg verk á borð við  Er ég mamma mín og  Með guð í vasanum. Í Svikasögum tekst hún á við hjónaskilnað og rof í kjarnafjölskyldunni með húmorinn og hlýjuna að vopni.

María leiðir magnaðan leikhóp skipaðan þeim Berglindi Öldu, Hákoni Jóhannessyni, Birnu Pétursdóttur, Mikael Kaaber, Kötlu Margréti og Vilhelm Neto, ásamt ungstirnunum Rebeccu Liv Biraghi og Viktoríu Dalitso.  Óhætt er að búast við hlátrasköllum í bland við hjartaskerandi andartök.

Höfundur og leikstjóri: María Reyndal

Leikmynd og búningar: Eva Signý Berger

Leikarar:

Berglind Alda Ástþórsdóttir

Birna Pétursdóttir

Hákon Jóhannesson

Katla Margrét Þorgeirsdóttir

Mikael Kaaber

Rebecca Lív Biraghi

Viktoría Dalitso Þráinsdóttir

Vilhelm Neto

Hvar

Borgarleikhúsið

Listabraut 3, 103 Reykjavík, Reykjavík

Skoða alla viðburði á þessum stað