Nýdönsk - Fullkomið farartæki
Laugardagur, 31. október 2026 · 21:00Menningarfélag Akureyrar · Akureyri
Miðar frá
11.990 kr.
Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.
Lýsing
Lesa meira
Hof Akureyri || 31. október 2026
Hljómsveitin Nýdönsk blæs til sinna árlegu hausttónleika í Hofi. Eins og fullkomið farartæki brunar sveitin áfram á vegum tónlistarinnar og sér ekki fyrir endann á ævintýrinu endalausa. Á síðasta ári sendi hljómsveitin frá sér hljómplötuna Í raunheimum sem innihélt meðal annars lag ársins.
Á tónleikunum mun Nýdönsk leika sín þekktustu lög auk þess sem nýjasta efnið slæðist með.
Meðlimir hljómsveitarinnar eru þeir Daníel Ágúst Haraldsson, Björn Jr. Friðbjörnsson, Jón Ólafsson, Ólafur Hólm og Stefán Hjörleifsson.
Sérlegir hjálparkokkar eru þeir Guðmundur Pétursson og Ingi Skúlason.