Miðar
Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.
Lýsing
Lesa meira
Tóma rýmið
Tilraunavettvangur upprennandi sviðslistafólks
Tóma rýmið er listamannarekið sviðslistarými með glænýtt og glæsilegt aðsetur úti á Granda. Á undanförnum árum hafa meðlimir Tóma rýmisins staðið fyrir mánaðarlegum tilraunakvöldum þar sem upprennandi sviðslistafólki úr ólíkum áttum býðst að sýna brot úr verkum í vinnslu, kynna hugmyndir og skissur og gera tilraunir. Tóma rýmið mun standa fyrir tveimur slíkum tilraunakvöldum í Þjóðleikhúskjallaranum í vetur og bjóða áhorfendum að sjá það allra, allra ferskasta í íslenskum sviðslistum. Komið og takið þátt í tilrauninni!
Listrænn stjórnandi: Hallveig Kristín Eiríksdóttir.