Tvíhöfði - 30 ára brúðkaupsafmæli
Harpa, ReykjavíkDagsetningar: 2
Þeir Sigurjón Kjartansson og Jón Gnarr hafa glatt margar kynslóðir íslendinga á sínum langa samstarfsferli. Þeir færðu okkur Fóstbræður og ýmislegt annað hágæða sjónvarpsefni. En samstarf þeirra í útvarpi er ekki síður einstakt. Útvarpsþátturinn Tvíhöfði er ekki bara þáttur heldur upplifun sem á engan sinn líka hér á landi eða í nágrannaríkjum okkar. Mánuðum saman héldu þeir Nígeríska svikahrappinum Mustapha á snakki og öll þjóðin fylgdist með þegar Woody Allen, Dr. Frankenstein og Harrison…