Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Aftur í viðburði
GDRN og Magnús Jóhann Jólatónleikar á Þorláksmessu
Tónlist

GDRN og Magnús Jóhann Jólatónleikar á Þorláksmessu

Miðvikudagur, 23. desember 2026 · 20:00Háskólabíó · Reykjavík

Skoða upprunalega vefinnFrá 6.990 kr.

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Lýsing

Lesa meira

Tvíeykið knáa GDRN og Magnús Jóhann hafa komið víða við í íslensku tónlistarlífi undanfarin ár. Hljómplötur þeirra, Tíu íslensk sönglög (2022) og Nokkur jólaleg lög (2024) hafa notið mikilla vinsælda og sú fyrrnefnda varð nýverið að platínuplötu. Síðastliðin tvö ár hafa jólatónleikar þeirra slegið í gegn og í ár ætla þau að tjalda öllu til á Þorláksmessu í Háskólabíói. Þar mun fögur rödd GDRN blandast mjúkum píanóleik Magnúsar og hátíðarandinn svífa yfir vötnum. Ekki missa af friðsælu andartaki rétt áður en jólin ganga í garð.

Miðasalan er á tix.is og hefst 2. október kl 10:00

GDRN hefur látið mikið á sér kræla í íslensku tónlistarlífi frá því að hún gaf út sína fyrstu breiðskífu, Hvað ef, árið 2018. Sú hljómplata hlaut fjölda tónlistarverðlauna, tilnefningu til tónlistarverðlauna Norðurlanda og mikla athygli. Síðan þá hefur hún sent frá sér fjölda laga í samstarfi við aðra listamenn sem og tvær sólóplötur til viðbótar. GDRN, árið 2020 og Frá mér til þín, árið 2024. Auk tónlistarferilsins lék hún eitt aðahlutverkanna í Netflix seríunni Kötlu.

Magnús Jóhann Ragnarsson hefur verið mikilvirkur í íslensku tónlistarlífi undanfarin ár sem píanóleikari, upptökustjóri, tónskáld og ýmislegt fleira fyrir fjölda listamanna. Hann hefur gefið út átta plötur undir eigin nafni og tvær stuttskífur. Hann var valinn tónlistarflytjandi ársins á Íslensku Tónlistarverðlaununum 2023 og 2025. Auk þess frumflutti hann nýjan konsert með Sinfóníuhljómsveit Íslands í vor. Bubbi Morthens, Friðrik Dór, Bríet, Ingibjörg Turchi, Skúli Sverrisson og Moses Hightower eru á meðal þess þverfaglega fjölda listafólks sem hann hefur starfað með.

TónlistTónleikar

Hvar

Háskólabíó

Hagatorg, 107 Reykjavík, Reykjavík

Skoða alla viðburði á þessum stað