Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Aftur í viðburði
Tónlist

Splunkuný tegund af erótík með Jólabjöllunum

Sunnudagur, 29. nóvember 2026 · 19:30Hljómahöll · Reykjanesbær

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Sæktu iPhone-appið

Flytjendur

Lýsing

Lesa meira

Hljómahöll || 29. nóv.

Jólabjöllurnar snúa aftur og í þetta sinn með splunkunýja tegund af erótík!

Sönghópurinn sem hefur glatt, hneykslað og kitlað hláturtaugar landsmanna í meira en áratug býður til stórskemmtilegra jólatónleika sunnudaginn 29. nóvember kl. 19:30 í Hljómahöll í Reykjanesbæ.

Á efnisskránni verður að venju góð blanda af eldri lögum og glænýjum sem hafa fengið hina sérstæðu Jólabjöllumeðferð. Klassísk lög fá nýtt líf, textarnir fara gjarnan þangað sem aðrir þora ekki og fátt ef nokkuð er heilagt.

Að venju verður líka æsispennandi happdrætti með glæsilegum vinningum og hægt verður að næla sér í spennandi varning á staðnum – tilvalið fyrir þau sem eiga allt.

Allir textar eru á íslensku – öll velkomin. Við bendum þó á að tónleikarnir henta ekki einstaklingum undir 20 ára aldri.

Komdu og kynntu þér splunkunýja tegund af erótík með Jólabjöllunum – við lofum að að jólin verða aldrei söm aftur.

Viðbótarupplýsingar

Búið til með gervigreind

Sjálfvirkar tillögur sem haldið er aðskildum frá opinberum upplýsingum skipuleggjanda.

Sönghópurinn Jólabjöllurnar heldur gamansama jólatónleika sunnudaginn 29. nóvember kl. 19:30 í Hljómahöll í Reykjanesbæ. Á efnisskránni er blanda af eldri lögum og nýjum. Einnig verður happdrætti með vinningum og varningur til sölu á staðnum. Allir textar eru á íslensku. Tónleikarnir henta ekki einstaklingum undir 20 ára aldri.

TónlistTónleikarUppistand

Heimild: tix.is