Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Sígild jól
Tónlist

Sígild jól

Föstudagur, 4. desember 2026 · 20:00Seltjarnarneskirkja · Seltjarnarnes

Skoða upprunalega vefinnFrá 9.800 kr.

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Lýsing

Lesa meira

Sígild jól 2026

Listamenn:

Sigríður Ósk Kristjánsóttir, mezzo-sópran.Sigrún Hjáltýsdóttir, sópran.Gissur Páll Gissurarson, tenór.Tómas Guðni Eggertsson, orgel og píanó.Hjörleifur Valsson, fiðla.Júlía Mogensen, selló.

Tónleikarnir Sígild jól eru dásamleg upplifun á aðventunni. Tónleikarnir eru orðnir fastur liður í aðventu margra tónleikagesta.  Þar sem tónleikarnir fara fram í kirkju og gestir eru í návígi við tónlistarfólkið skapast vinaleg og hátíðleg stemning.

Nokkrir af okkar fremstu sígildu söngvurum færa okkur fagra tóna við meðleik framúrskarandi hljóðfæraleikara. Tónlistin er aðallega sígild og fer aðeins út í jazz og dægurlög.

Á dagskránni er góð blanda af fallegum jólasöngvum og -sálmum íslenskum og erlendum. Má þar nefna perlur eins og Ave Maríur, dúettinn Con te partiro, Jólin alls staðar, Yfir fannhvíta jörð, Have yourself a merry little Christmas, Ó helga nótt og Heims um ból í gullfallegum dúett.

Í ár er 10 ára afmæli Sígildra jóla. Af því tilefni semur tónskáldið Bára Grímsdóttir jólalag sérstaklega fyrir tónleikana.

Listrænn stjórnandi tónleikanna er Sigríður Ósk Kristjánsdóttir.

Tónleikarnir hefjast kl. 20 í Seltjarnarneskirkju, sem opnar kl. 19:30 og það er frjálst sætaval.

TónlistTónleikar