Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Lýsing

Lesa meira

3.sýning

Afi er bestur!

Hinn eini sanni Afi er loks mættur í leikhúsið

Glæný og fjörug fjölskyldusýning þar sem Afi, sem fyrst birtist sjónvarpsáhorfendum fyrir réttum 40 árum, snýr aftur í töfrandi og ævintýralegri sýningu fyrir börn frá 3ja ára aldri og fjölskyldur.

Við sláumst í för með Afa í æsispennandi ferðalag um framandi slóðir þar sem ekkert er eins og það sýnist. Afi – Ævintýri í uppsiglingu er hjartnæm og bráðskemmtileg leiksýning sem vekur hlýjar minningar og gleður.

Þær Agnes leikstjóri, Eva Björg leikmynda- og búningahöfundur og Sigrún tónhöfundur hafa áður meðal annars skapað hinar margrómuðu sýningar Blómin á þakinu og Hreiðrið í Þjóðleikhúsinu. Agnes leikstýrði barnasýningu ársins á síðasta leikári, Línu Langsokk, í Þjóðleikhúsinu.

Aldursviðmið: 3 ára og eldri.

Leikarar: Örn Árnason, Helga Salvör Jónsdóttir, Jónmundur Grétarsson.

FjölskyldanLeikhús

Hvar

Þjóðleikhúsið

Hverfisgata 19, 101 Reykjavík, Reykjavík

Skoða alla viðburði á þessum stað