Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Ari Eldjárn: Áramótaskop 2026
Uppistand

Ari Eldjárn: Áramótaskop 2026

Laugardagur, 19. desember 2026 · 18:00Menningarfélag Akureyrar · Akureyri

Skoða upprunalega vefinnFrá 9.990 kr.

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Lýsing

Lesa meira

Hof Akureyri

Ari Eldjárn býður þér að kveðja með sér árið sem er að líða með ógleymanlegri uppistandssýningu sinni Áramótaskop!

Ari er einn allra vinsælasti uppistandari þjóðarinnar bæði hér heima fyrir og utan landsteinanna. Árið 2020 varð hann fyrsti íslenski skemmtikrafturinn til að fá gamansýningu tekna til sýninga hjá bandarísku streymisveitunni Netflix þegar þætti hans Pardon my Icelandic var dreift á heimsvísu til fleiri milljóna áhorfenda. Pardon my Icelandic vann Edduna árið 2021 fyrir skemmtiþátt ársins.

Þetta er í tíunda sinn sem Ari Eldjárn kveður árið með þessum hætti en sýningin hefur notið ómældra vinsælda og alltaf selst upp. Um 20.000 manns mættu á sýningar víðsvegar um landið um síðustu áramót til að kveðja gamla árið með hlátrasköllum. Hver sýning er einstök og mun áherslan vera lögð á að kveðja árið með eftirminnilegum hætti í bland við annað efni.

Ekki missa af þessu einstaka Áramótaskopi!