Miðar frá
Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.
Lýsing
Lesa meira
Skautasvell í Jólabænum Hafnarfirði frá 13. nóvember til 23. desember 2026
Í nóvember og desember mun Hafnarfjarðarbær í samvinnu við Bæjarbíó starfrækja Hjartasvellið, 200 fermetra skautasvell fyrir fólk á öllum aldri. Svellið var fyrst opnað á aðventunni árið 2021 og hefur aldeilis slegið í gegn hjá unga fólkinu. Hjartasvellið verður í ár, líkt og í fyrra staðsett beint á móti Bæjarbíó fyrir utan Bókasafn Hafnarfjarðar og Barböru.
100% vistvænt og 100% skemmtilegt
Hjartasvellið er 100% vistvænt þar sem hvorki vatn né rafmagn er notað til að frysta það. Svellið er byggt á sérhönnuðum gerviísplötum sem hafa sömu eiginleika og venjulegur ís sem býður uppá frábæra afþreyingu, upplifun og hreyfingu fyrir alla fjölskylduna.
Opnunartími Hjartasvellsins
Föstudaga frá kl. 16-20 Laugardaga frá kl. 13-20 Sunnudaga frá kl. 13-18Þorláksmessa, opið 14-21
*Síðasta bókun er klukkutíma fyrir lokun
Fyrirkomulagið er einfalt:
Þú pantar þína skautaferð og skauta á www.tix.is best er að tryggja sér skautaferðina með því að kaupa miða fyrirfram á netinuHver skautaferð er 40 mín og hefst á heila tímanumHjálmur og skautar eru innifalin Mikilvægt er að mæta tímanlega til að forðast raðirHægt er að kaupa allt að átta ferðir á 5.000 kr í sérstökum fjölskyldupakka og reiknast afslátturinn í körfunni sjálfkrafa. Eingöngu er hægt að kaupa fjöldskyldupakkann á tix.is
VERÐ
Hver skautaferð kostar 1.500 kr og eru skautar og hjálmur innifalið í ferðinniFjölskyldu pakki kostar 5.000 krBörn yngri en 6 ára verða að vera í fylgd foreldra
Viðbótarupplýsingar
Búið til með gervigreindSjálfvirkar tillögur sem haldið er aðskildum frá opinberum upplýsingum skipuleggjanda.
Hjartasvellið er 200 fermetra vistvænt skautasvell úr gerviís í Jólabænum Hafnarfirði, opið 13. nóvember til 23. desember 2026, staðsett á móti Bæjarbíó fyrir utan Bókasafn Hafnarfjarðar. Hafnarfjarðarbær og Bæjarbíó standa að svellinu. Hver 40 mínútna skautaferð kostar 1.500 kr með skautum og hjálmi; fjölskyldupakki með allt að átta ferðum kostar 5.000 kr á tix.is. Börn yngri en 6 ára verða að vera í fylgd foreldra.
Greindir þátttakendur: Hafnarfjarðarbær, Bæjarbíó