Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Sæktu iPhone-appið

Flytjendur

Lýsing

Lesa meira

Öskugrár hjónaleikur

Frank stendur með tvo plastpoka í anddyri glæsiíbúðar sinnar og Katarínu. Í öðrum pokanum eru nýir skór, í hinum öskuker móður hans, sem á að jarðsetja daginn eftir. Von er á bróður Franks og mágkonu, en þau afboða komu sína. Til að létta þrúgandi stemninguna, bjóða hjónin nágrönnum sínum í heimsókn. Við tekur drykkja og usli, sem opna gömul sár og leysa úr læðingi bældar langanir. Úr verður ógleymanleg erfidrykkja, með óljósum leikreglum, svörtum húmor og kostulegum uppákomum. Í hlutverkum Franks og Katarínu eru Hilmir Snær Guðnason og Vala Kristín Eiríksdóttir en nágranna þeirra leika þau Haraldur Ari Stefánsson og Íris Tanja Flygenring.

Höfundur: Lars Norén

Þýðing: Hlín Agnarsdóttir

Leikstjóri: Stefán Jónsson

Leikmynd: Börkur Jónsson

Búningar: Helga I. Stefánsdóttir

Leikarar:

Haraldur Ari Stefánsson

Hilmir Snær Guðnason

Íris Tanja Flygenring

Vala Kristín Eiríksdóttir

Viðbótarupplýsingar

Búið til með gervigreind

Sjálfvirkar tillögur sem haldið er aðskildum frá opinberum upplýsingum skipuleggjanda.

Öskugrár hjónaleikur eftir Lars Norén í Borgarleikhúsinu. Frank og Katarína bjóða nágrönnum heim kvöldið fyrir jarðsetningu móður Franks; drykkja og usli opna gömul sár í erfidrykkju með svörtum húmor. Leikstjóri: Stefán Jónsson. Þýðing: Hlín Agnarsdóttir. Leikarar: Hilmir Snær Guðnason, Vala Kristín Eiríksdóttir, Haraldur Ari Stefánsson og Íris Tanja Flygenring.

LeikhúsSviðslistir

Heimild: tix.is