Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Aftur í viðburði
Tónlist

Björgvin - minningartónleikar

Laugardagur, 28. nóvember 2026 · 20:00Harpa · Reykjavík

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Sæktu iPhone-appið

Flytjendur

Lýsing

Lesa meira

Harpa - Eldborg || 28. nóvember 2026

Björgvin Halldórsson - maður sviðs og söngva

28. NÓVEMBER KL. 16 - ÖRFÁIR MIÐAR EFTIR
28. NÓVEMBER KL. 20 - UPPSELT
29. NÓVEMBER KL. 20 - ÖRFÁIR MIÐAR EFTIR

“Sumir hverfa fljótt úr heimi hér, skrítið stundum hvernig lífið er.
Eftir sitja margar minningar, þakklæti og trú.”

Björgvin Halldórsson var maður sviðs og söngva. Hann er goðsögn í íslensku tónlistarlífi. Laugardaginn 28. nóvember hittumst við í Eldborg og heiðrum minningu hans.

Björgvin gerði tónlistina að ævistarfi og eftir hann liggja margar helstu perlur íslenskrar dægurtónlistar. Sjálfur hafði hann í huga að halda upp á 75 ára afmæli sitt með heiðurstónleikum og var undirbúningur hafinn þegar hann lést skyndilega þann 9. apríl síðastliðinn. Í samráði við fjölskyldu Björgvins var tekin sú ákvörðun að halda áfram með hugmyndir sem þegar voru komnar fram. Eldborg var bókuð og Björgvin var sjálfur búinn að velja mynd í plakatið og langt kominn með val á lögum og söngvurum.

Björgvin hugsaði stórt og verður því allt lagt í sölurnar að gera glæsilega tónleika í minningu hans. Við vitum jú öll hver hann var!

Svala Bjōrgvins vinnur nú að endurgerð af laginu Skýið, sem faðir hennar Björgvin samdi árið 1978 og kom út á plötunni Ég skal syngja fyrir þig. Allir Íslendingar þekkja þetta lag og Svala flutti það svo eftirminnilega í jarðarför föður síns. Skýið með Svölu kemur út föstudaginn 12. júní.

Svala og Krummi Björgvinsbörn leiða landslið íslenskra tónlistarmanna á svið Eldborgar og í sameiningu flytja þau okkur tónlistina sem Björgvin gaf okkur síðastliðna áratugi.

Ógleymanlegt kvöld í vændum þar sem Vetrarsól brýst í gegnum Skýið og okkar Eina ósk er að Riddari götunnar og Gullvagninn rati rétta leið. Björgvin, við Syngjum fyrir þig og Þó líði ár og öld mun Minning þín lifa.

Athugið: Að gefnu tilefni skal tekið fram að ekki er fyrirhugað að streyma tónleikunum.

GESTGJAFAR:
Svala
Krummi

SÖNGVARAR:
Ásgeir Trausti
Eyjólfur Kristjánsson
GDRN
Helgi Björnsson
Mugison
Ragnheiður Gröndal
Sigga Beinteins
Sigríður Thorlacius
Stefán Hilmarsson

SÉRSTAKUR GESTUR:
Ari Eldjárn

LEYNIGESTIR:
???

HLJÓMSVEIT:
Þórir Úlfarsson - Hljómborð, hljómsveitarstjórn, útsetningar
Bjarni Sigurðarson - Gítar
Einar Scheving - Slagverk
Gunnlaugur Briem - Trommur
Jón Elvar Hafsteinsson - Gítar
Ómar Guðjónsson - Pedal Steel
Óttar Sæmundsen - Bassi
Phillip Joseph Doyle - Sax
Tómas Jónsson - Hljómborð

BAKRADDIR:
Andrea Ingvarsdóttir
Kristján Gíslason
Íris Lind

KÓR:
Karlakórinn Fóstbræður

LEIKSTJÓRN:
Gunnar Helgason

MIÐAVERÐ:
Gull:  21.990  (gulgrænt á mynd)
Úrvals: 19.990  (fjólublátt á mynd)
A sæti: 17.990  (rautt á mynd)
B sæti: 15.990  (blátt á mynd)
C sæti: 13.990 (grænt á mynd)
D sæti: 11.990  (gult á mynd)
E sæti:   8.990 (bleikt á mynd)

Mynd af sal hér

Umsjón: Sena Live

TónlistTónleikar

Viðbótarupplýsingar

Búið til með gervigreind

Sjálfvirkar tillögur sem haldið er aðskildum frá opinberum upplýsingum skipuleggjanda.

Minningartónleikar um Björgvin Halldórsson í Eldborg í Hörpu 28. nóvember kl. 16 og 20 (uppselt kl. 20) og 29. nóvember kl. 20. Svala og Krummi Björgvinsbörn leiða hóp söngvara, m.a. Ásgeir Trausta, GDRN, Helga Björnsson, Mugison og Siggu Beinteins, ásamt hljómsveit undir stjórn Þóris Úlfarssonar og Karlakórnum Fóstbræðrum. Sérstakur gestur er Ari Eldjárn. Leikstjórn: Gunnar Helgason. Tónleikunum verður ekki streymt. Miðaverð 8.990–21.990.

TónlistTónleikar

Heimild: tix.is