Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Aftur í viðburði
ANOK - Iceland Airwaves PARTNER EVENT @ Hallgrímskirkja
Tónlist

ANOK - Iceland Airwaves PARTNER EVENT @ Hallgrímskirkja

Föstudagur, 6. nóvember 2026 · 18:00Hallgrímskirkja · Reykjavík

Skoða upprunalega vefinnFrá 5.900 kr.

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Lýsing

Lesa meira

ANOK - Iceland Airwaves PARTNER EVENT @ Hallgrímskirkja

Anok er glænýtt verk eftir Högna Egilsson samið fyrir Cantoque Ensemble, orgel, selló og slagverk.

ANOK er koptíska orðið fyrir ég — sama orð og býr að baki hebreska orðinu ānōkî í „Ég er Drottinn, Guð þinn“

Verkið sækir texta sinn í fornt ljóð sem fannst við Nag Hammadi í Efra-Egyptalandi árið 1945, afritað á fjórðu öld. Þar er engin frásögn og engin ein mynd sem heldur sér. Aðeins rödd.

Hún talar í andstæðum: hún er hin fyrsta og hin síðasta, hin virta og hin fyrirlitna, móðir og dóttir. Hún tekur sér hvert nafn og hafnar því um leið. Með hverri setningu verður sjálfið bæði skýrara og þokukenndara.

Allt hefst á einu orði: ég en hvert ég opnar nýja sprungu, röddin færist nær og fjær í senn, þar til eftir stendur ráðgáta sem bergmálar.

Flytjendur:

Högni Egilsson, tónskáld / stjórnandiCantoque EnsembleOrganCelloPercussionSoloists: Hallveig Rúnarsdóttir og Hildigunnur Einarsdóttir

Tónleikarnir eru samstarf Cantoque Ensemble, Iceland Airwaves og Hallgrímskirkju. Þeir eru hluti af tónleikaröðinni Haust í Hallgrímskirkju 2026 og haldinn sem Iceland Airwaves Partner Event..

HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN TÓNLEIKASTAÐUR

TónlistTónleikar