Vespers e. Rachmaninoff - Kyrja + Yrkja - Næturvaka fyrir fórnarlömb stríðs
Sunnudagur, 1. nóvember 2026 · 17:00Hallgrímskirkja · Reykjavík
Miðar frá
6.900 kr.
Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.
Lýsing
Lesa meira
Sönghóparnir Kyrja og Yrkja sameina krafta sína og flytja hina stórkostlegu Næturvöku (Vespers) eftir Sergei Rachmaninoff í Hallgrímskirkju, með tuttugu söngvurum án stjórnanda.
Á allra sálna messu, 1. nóvember, þegar birtan dvín og vetur tekur við, komum við saman til að minnast látinna í athöfn ljóss og tónlistar. Við minnumst ástvina okkar og tileinkum tónleikana sérstaklega fórnarlömbum stríðsins í Úkraínu og Palestínu.
Kyrja er karlakór sem stofnaður var árið 2022 með það að markmiði að færa út kvíar kórtónlistar. Yrkja er glænýr kvennakór stofnaður í sama tilgangi árið 2025. Báðir eru þeir undir listrænni stjórn Philips Barkhudarov og Sólveigar Sigurðardóttur.
Tónleikarnir eru í samstarfi við Hallgrímskirkju og hluti af tónleikaröðinni Haust í Hallgrímskirkju.
Söngvarar eru:
Sópran:
Alda Úlfarsdóttir
Ásta Sigríður Arnardóttir
María Konráðsdóttir
Sólveig Sigurðardóttir
Alt:
Bergþóra Linda Ægisdóttir
Margrét Björk Daðadóttir
Sara Gríms
Sunna Karen Einarsdóttir
Valgerður Helgadóttir
Tenór:
Bjarni Guðmundsson
Jón Ingi Stefánsson
Marteinn Snævarr Sigurðsson
Þorkell Helgi Sigfússon
Þorsteinn Freyr Sigurðsson
Þórhallur Auður Helgason
Bassi:
Pétur Oddbergur Heimisson
Philip Barkhudarov
Ragnar Pétur Jóhannsson
Stefán Sigurjónsson
Örn Ýmir Arason
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN TÓNLEIKASTAÐUR