Lífsorka - Bergur Ebbi uppistand
Laugardagur, 20. febrúar 2027 · 20:00Borgarleikhúsið · Reykjavík
Miðar frá
7.200 kr.
Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.
Lýsing
Lesa meira
6. sýning
Bergur Ebbi mætir til leiks í Borgarleikhúsið með glænýtt uppistand.
Lífsorka fjallar um stóru málin með linsu hversdagsleikans. Til umfjöllunar eru tæknibreytingar, lífsgæðakapphlaupið, barnauppeldi, skemmtanalíf og allir litlu þræðirnir sem fléttast saman og eru uppistaðan í tilverunni. Aðdáendur Bergs Ebba og góðs uppistand verða ekki sviknir af þessari sýningu, sem er bæði fræðandi og fyndin auk þess að vera með eindæmum orkurík!
Fyrri sýningar Bergs Ebba, Kynslóðir og Hagsmunir gengu fyrir fullu húsi á árunum 2022-25 og voru sýndar tæplega sjötíu sinnum með á annan tug þúsund gesta. Bergur Ebbi er einn reyndasti uppistandari landsins með tæpa tveggja áratuga reynslu af uppistandi, fyrirlestrahaldi og alvarlegum jafnt sem gamansömum greiningum á samfélaginu í bókum, pistlum, sjónvarps- og útvarpsefni.