Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Matur og drykkur

PALESTÍNSKUR MATUR OG MENNING

Sunnudagur, 29. nóvember 2026 · 19:00Hallveigarstaðir · Reykjavík

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Sæktu iPhone-appið

Lýsing

Lesa meira

PALESTÍNSKUR MATUR OG MENNING

29.nóvember er alþjóðlegur samstöðudagur með Palestínu, og því tilvalið að koma saman til að styrkjast í samstöðu okkar og lyfta upp palestínskri menningu. Við munum borða palestínskan mat, hlýða á arabíska tónlist og að lokinni dýrindis máltíð ætlum við að dansa dabke-dansa saman undir leiðsögn kennara.
Þetta verður einstakt tækifæri til að eiga hlýlega samverustund á aðventunni og styrkja í leiðinni málefni sem skiptir máli, en allur ágóði rennur til palestínskra góðgerðarsamtaka.
Húsið opnar kl. 18:30 og borðhald hefst kl. 19:00. Grænmetismatur í boði.

Miðaverð:
6.000 kr. fyrir eldri en 12 ára
1.500 kr. fyrir börn 5–12 ára
Ókeypis fyrir yngri en 5 ára

Matur og drykkurFjölskyldanHátíðir

Viðbótarupplýsingar

Búið til með gervigreind

Sjálfvirkar tillögur sem haldið er aðskildum frá opinberum upplýsingum skipuleggjanda.

Samkoma á alþjóðlegum samstöðudegi með Palestínu, 29. nóvember, á Hallveigarstöðum í Reykjavík. Boðið er upp á palestínskan mat og arabíska tónlist, og eftir máltíðina verður dansaður dabke undir leiðsögn kennara. Húsið opnar kl. 18:30 og borðhald hefst kl. 19:00. Grænmetismatur er í boði. Allur ágóði rennur til palestínskra góðgerðarsamtaka. Miðaverð er 6.000 kr. fyrir eldri en 12 ára og 1.500 kr. fyrir börn 5–12 ára. Ókeypis er fyrir yngri en 5 ára.

Matur og drykkurListir og menningSamfélagDansTónlist

Heimild: tix.is