Móðurljósið skæra - tónleikar Söngfjelagsins
Sunnudagur, 6. desember 2026 · 16:00Langholtskirkja · Reykjavík
Miðar frá
Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.
Lýsing
Lesa meira
Móðurljósið skæra
Þegar dagarnir eru stystir leitum við ljóssins. Í ár syngur Söngfjelagið um móðurljósið skæra, ljósið sem kviknar í myrkrinu og ber með sér hlýju, von og nýtt upphaf. Móðuraflið er rauði þráðurinn í efnisskránni. Það birtist í Maríu mey, móður jólanna, og í öllum þeim mæðrum sem vaka yfir börnum sínum en líka í hinni ógurlegu Grýlu sem á sinn fasta sess í íslenskum jólum.
Við ferðumst í söng frá Íslandi til Englands, Írlands og Noregs, suður til Brasilíu og austur til Kýpur. Blíð vögguljóð og fornir helgisöngvar mæta þar dillandi danstakti og gáskafullum þjóðlögum og nýrri lögum. Við bjóðum upp á litríkt og fjölbreytt ferðalag þar sem friður og fögnuður haldast í hendur.
Áralöng hefð er fyrir jólalögum Söngfjelagsins og í ár verður frumflutt nýtt jólalag sem Hreiðar Ingi Þorsteinsson tónskáld samdi sérstaklega fyrir kórinn við ljóð Jakobínu Sigurðardóttur.
Stjórnandi: Lilja Dögg Gunnarsdóttir
Slagverk: Kristofer Rodriques Svönuson
Kontrabassi: Örn Ýmir Arason
Píanó: Kjartan Valdemarsson
Gítar: Stefán Hjörleifsson
Viðbótarupplýsingar
Búið til með gervigreindSjálfvirkar tillögur sem haldið er aðskildum frá opinberum upplýsingum skipuleggjanda.
Söngfjelagið heldur tónleika í Langholtskirkju í Reykjavík undir stjórn Lilju Dögg Gunnarsdóttur. Efnisskráin snýst um móðurljósið, jól og fjölbreyttan söng frá Íslandi til Evrópu og Suður-Ameríku. Meðlimir eru Kristofer Rodriques Svönuson, Örn Ýmir Arason, Kjartan Valdemarsson og Stefán Hjörleifsson.
Greindir þátttakendur: Söngfjelagsins, Lilja Dögg Gunnarsdóttir, Kristofer Rodriques Svönuson, Örn Ýmir Arason, Kjartan Valdemarsson, Stefán Hjörleifsson