Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Aftur í viðburði
Tónlist

Creedence Clearwater Revival Heiðurstónleikar

Föstudagur, 19. mars 2027 · 20:00Menningarfélag Akureyrar · Akureyri

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Sæktu iPhone-appið

Lýsing

Lesa meira

Hof Akureyri || 19.03.2027

Með því að skrá þig á listann færðu aðgang að forsölu á tónleika og viðburði á vegum Dægurflugunnar áður en almenn miðasala hefst.

Skráðu þig hér á póstlista Dægurflugunnar.

CREEDENCE CLEARWATER REVIVAL

Heiðurstónleikar

Fáar hljómsveitir hafa skilið eftir sig jafn djúp spor í tónlistarsögunni á jafn skömmum tíma og Creedence Clearwater Revival (CCR). Sveitin – sem skipuð var þeim John Fogerty, Tom Fogerty, Stu Cook og Doug Clifford – starfaði aðeins í rúm fjögur ár, frá 1967 til 1972. Á þeim stutta tíma gáfu þeir út sjö hljóðversplötur, þar af þrjár á árinu 1969 einu saman, og hafa samtals selt yfir 100 milljónir platna á heimsvísu.

Þrátt fyrir að langt sé síðan sveitin lagði upp laupana er tónlistin þeirra vinsælli en nokkru sinni fyrr. Á streymisveitunni Spotify telja mánaðarlegir hlustendur um 33 milljónir og heildarspilun laga þeirra nálgast 12 milljarða. Til að átta sig á hversu einstök hljómsveitin og lagasmíðar hennar voru er fróðlegt að bera sama hlustun á Spotify við hljómsveitir eins og Red Hot Chili Peppers, Foo Fighters, AC/DC, U2, The Rolling Stones, Pink Floyd og Led Zeppelin – CCR er með meiri hlustun en allar þessar hljómsveitir, þrátt fyrir að hafa ekki gefið út nýtt lag síðan árið 1972!

Á þessum heiðurstónleikum verður þessari einstöku tónlistararfleifð fagnað og helstu perlur þeirra fluttar eins og t.d.

Proud Mary – Bad Moon Rising – Have You Ever Seen the Rain – Fortunate Son – Down on the Corner – Green River – Who'll Stop the Rain – Up Around the Bend – Born on the Bayou - Rocking all over the world og fjölmargir fleiri ódauðlegir slagarar.

Söngvarar

Birgir Haraldsson

Stefán Jakobsson (Sérstakur gestur)

Hljómsveitin CCReykjavík

Birgir Haraldsson – söngur og kassagítar

Ingólfur Sigurðsson – trommur og raddir

Jóhann Ásmundsson - bassi

Sigurgeir Sigmundsson – gítar

Þórir Úlfarsson – hljómborð og raddir

Í tilefni tónleikanna og afmælisársins mun CCReykjavík setja 2 plötur með lögum CCR inn á Spotify og er ennfremur gefa út afmælisútgáfu á vínil af lögum CCR í byrjun 2027 sem verður til sölu á tónleikunum.

TónlistTónleikar

Heimild: tix.is