Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Aftur í viðburði
Fjölskyldan

Hnotubrjóturinn - Jólasýning Dansgarðsins Óskanda

Þriðjudagur, 1. desember 2026 · 18:30Borgarleikhúsið · Reykjavík

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Sæktu iPhone-appið

Lýsing

Lesa meira

2. sýning

Hnotubrjóturinn - Jólasýningar Dansgarðsins Óskanda verður 1. desember kl. 16:00 og kl. 18:30.

Nú er komið að jólahefð Dansgarðsins, dansverkinu Hnotubrjótnum. Í ár eru um 150 nemendur sem taka þátt í uppfærslunni og hlökkum við til að deila með ykkur þessu skemmtilega jólaverki sem kemur öllum í hátíðarskap.

Sagan um Hnotubrjótinn í útfærslu Dansgarðsins Óskanda hefst í jólaboði þar sem Drosselmeyer frændi, göldróttur úra- og leikfangasmiður, kemur í heimsókn. Hann gefur guðdóttur sinni, Klöru, hnotubrjót sem er í álögum en lifnar við eftir að Klara sigrar rottukónginn í bardaga. Klara og hnotubrjóturinn fara inn í töfraskóg þar sem englar og snjókorn dansa. Næst fara þau í konungsríki úr sykri, þar sem sykurplómudrottningin tekur á móti þeim og mikil veisla er haldin í tilefni af komu þeirra. Þar dansa ýmiss konar góðgæti eins og piparkökur, marsipan, bollakökur, karamella, nammistafir, súkkulaði, lakkrís og að lokum blómaprinsessur og sykurplómudísir.

Hnotubrjóturinn er skemmtilegt ævintýri, fullt af töfrum. Verkið er blanda af nútímalistdansi og klassískum ballett.

Dansverkið byggir á sögu E.T.A. Hoffmann og er flutt við sígilda tónlist Pyotr Ilyich Tchaikovsky.

FjölskyldanLeikhús

Viðbótarupplýsingar

Búið til með gervigreind

Sjálfvirkar tillögur sem haldið er aðskildum frá opinberum upplýsingum skipuleggjanda.

Jólasýning Dansgarðsins Óskanda á dansverkinu Hnotubrjótnum, 1. desember kl. 16:00 og kl. 18:30 (2. sýning). Um 150 nemendur taka þátt. Verkið byggir á sögu E.T.A. Hoffmann, er flutt við tónlist Pyotr Ilyich Tchaikovsky og er blanda af nútímalistdansi og klassískum ballett.

SviðslistirDansLeikhúsFjölskyldan

Greindir þátttakendur: Dansgarðurinn Óskandi

Heimild: tix.is