Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Tónlist

Hið óskiljanlega

Laugardagur, 5. desember 2026 · 14:00Barðavogur 13

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Sæktu iPhone-appið

Flytjendur

Lýsing

Lesa meira

Hið óskiljanlega

Í Barðavogi 13, á fyrrum heimili og vinnustofu myndlistarmannsins Kristjáns Davíðssonar, mætast sellóleikarinn Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir og rithöfundurinn Maó Alheimsdóttir í opnunarviðburði Ópus Reykjavík sem verður haldinn þann 5. desember kl. 14:00.

Tónlist og ljóð fléttast saman við myndlist Kristjáns og rýmið sem hann bjó og starfaði í. Verkið sprettur úr samtali við húsið og þau ummerki sem þar lifa. Hversdagsleikinn tekur á sig nýja mynd og umbreytist í draumkennt ferðalag inn í hið óskiljanlega, þar sem ólík tungumál listformanna kallast á og mynda nýja heild.

Viðburðurinn er um klukkustund að lengd. Gestum er boðið að staldra við, njóta anda hússins - og ylja sér við kaffi og piparkökur meðan á dagskránni stendur. Fjöldi gesta er takmarkaður.
Viðburðurinn er unninn í samstarfi við Álfheiði Erlu Guðmundsdóttur, listrænan stjórnanda Ópus Reykjavík.

Ópus Reykjavík er ný þverfagleg listasería sem leiðir saman íslenskt og alþjóðlegt listafólk úr fjölbreyttum miðlum. Með tónleikum, sýningum, samtölum, vinnustofum og nýjum verkefnum skapast vettvangur þar sem listafólk getur hist, miðlað hugmyndum og kannað nýjar leiðir til samstarfs. Serían fer fram nokkrum sinnum yfir árið og er lifandi vettvangur fyrir listrænar hugmyndir, fólk og ólíkar nálganir - opinn fyrir tilraunum, samtali og hinu óvænta. Fyrsta útgáfa Ópus Reykjavík, Ópus 1, fer fram í desember 2026.

Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir er íslensk-bandarískur sellóleikari sem hefur vakið athygli fyrir „seiðandi“ tónlistarflutning (The Independent) og verið hrósað fyrir „tæknilega yfirburði … og einstakan tónlistarlegan næmleika“ (Morgunblaðið). Hún hefur skapað sér sterka og persónulega rödd í listsköpun sinni þar sem næmni og djörf og kraftmikil sviðsframkoma mætast. Meðal nýlegra hápunkta á ferli hennar eru tónleikar í Carnegie Hall, Southbank Centre, Fílharmóníu Varsjár, Lincoln Center og Banff Centre. Hún hefur einnig komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Sinfóníuhljómsveit Konunglega tónlistarháskólans í London, meðal annarra. Túlkun hennar á sellósvítum Bachs sex í Eldborgarsal Hörpu í Reykjavík var lýst sem „upplifun sem vekur djúpa lotningu“ (Fréttablaðið).

Maó Alheimsdóttir er íslenskur rithöfundur búsett í Reykjavík og spannar listræn sköpun hennar ljóðlist, prósa og þverfaglega sviðslist. Í verkum sínum rannsakar hún tengsl mannlegra tilfinninga og landslags og fléttar gjarnan saman hljóði, myndmáli og texta. Með rætur bæði í pólskum arfi sínum og íslenskri málvitund brúar hún bilið milli bókmenntasköpunar og samfélagslegra verkefna í samstarfi við fjölbreyttar og fjölmenningarlegum listrænar raddir. Hún er með meistaragráðu í ritlist frá Háskóla Íslands. Á sumrin starfar hún sem leiðsögumaður á hálendi Íslands, en sú reynsla er mikilvægur innblástur í listrænni sköpun hennar.

TónlistSviðslistirTónleikar

Viðbótarupplýsingar

Búið til með gervigreind

Sjálfvirkar tillögur sem haldið er aðskildum frá opinberum upplýsingum skipuleggjanda.

Opnunarviðburður Ópus Reykjavík í Barðavogi 13, fyrrum heimili og vinnustofu myndlistarmannsins Kristjáns Davíðssonar, 5. desember kl. 14:00. Sellóleikarinn Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir og rithöfundurinn Maó Alheimsdóttir flétta saman tónlist og ljóð við myndlist Kristjáns og rýmið. Viðburðurinn er um klukkustund að lengd, boðið er upp á kaffi og piparkökur og fjöldi gesta er takmarkaður.

TónlistTónleikarSviðslistirListir og menning

Heimild: tix.is