Miðar frá
Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.
Flytjendur
Lýsing
Lesa meira
Samkomuhúsið á Akureyri
Verið hress, alltaf með stress, bless!
Kristín Þóra Haraldsdóttir mætir norður með geysivinsæla gamansýningu sína sem slegið hefur rækilega í gegn í Þjóðleikhúsinu. Eftir 99 uppseldar sýningar í Kjallaranum var verkið fært á Stóra sviðið – og nú gefst norðanmönnum loksins tækifæri til að sjá herlegheitin!
Á rauðu ljósi er einnar konu sýning þar sem uppistand, einleikur og algjört hispursleysi renna saman í eitt. Kristín talar á bráðfyndinn og einlægan hátt um stress, streitu, seiglu og þann eilífa dugnað sem fylgir því að vera manneskja. Kristín Þóra er öllum hnútum kunnug hjá LA, en hún var áður fastráðin við húsið og hefur síðan þá unnið til fjölda verðlauna fyrir leik sinn á sviði og skjá
Viðbótarupplýsingar
Búið til með gervigreindSjálfvirkar tillögur sem haldið er aðskildum frá opinberum upplýsingum skipuleggjanda.
Kristín Þóra Haraldsdóttir sýnir einnar konu gamansýninguna Á rauðu ljósi í Samkomuhúsinu á Akureyri. Í sýningunni renna uppistand og einleikur saman. Kristín talar á fyndinn og einlægan hátt um stress, streitu, seiglu og dugnað. Verkið var áður sýnt 99 sinnum fyrir uppseldu húsi í Kjallara Þjóðleikhússins og síðan fært á Stóra sviðið.