Miðar
Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.
Lýsing
Lesa meira
4.sýning
Sýningin sem gerði allt vitlaust í fyrra snýr aftur í Þjóðleikhúskjallarann!
Nú mæta ofurkonurnar í Raddbandinu aftur - stressaðri, þreyttari og með enn fleiri bolta á lofti.
Við fylgjumst með ungum mæðrum undirbúa hin fullkomnu jól, án þess þó að gefa nokkuð eftir í móðurhlutverkinu. Ná þær að töfra fram heilög jól í tæka tíð eða tryllast þær á sjálfsafgreiðslukassanum í Bónus?
Leikkonur og höfundar verksins, Auður Finnbogadóttir, Rakel Björk Björnsdóttir og Viktoría Sigurðardóttir, fara á kostum í sýningu sem byggð er á sönnum atburðum sem hefðu líklega átt að vera einkamál.
Stórskemmtileg kvöldstund þar sem tónlist, leikhús og dans renna saman í eina allsherjar jólasprengju!
Raddbandið vakti einnig athygli fyrir fjölskyldusöngleikinn Hver vill vera prinsessa? í Tjarnarbíó sem hlaut frábæra dóma og var talinn einn af hápunktum leikársins 2025 af menningargagnrýnanda Morgunblaðsins.
Viðbótarupplýsingar
Búið til með gervigreindSjálfvirkar tillögur sem haldið er aðskildum frá opinberum upplýsingum skipuleggjanda.
Jólasýning Raddbandsins snýr aftur í Þjóðleikhúskjallarann (4. sýning). Fylgst er með ungum mæðrum undirbúa hin fullkomnu jól. Leikkonur og höfundar verksins eru Auður Finnbogadóttir, Rakel Björk Björnsdóttir og Viktoría Sigurðardóttir. Sýningin er byggð á sönnum atburðum og þar renna tónlist, leikhús og dans saman.
Greindir þátttakendur: Raddbandið, Auður Finnbogadóttir, Rakel Björk Björnsdóttir, Viktoría Sigurðardóttir