Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Djöflar
Leikhús

Djöflar

Sunnudagur, 1. nóvember 2026 · 20:00Borgarleikhúsið · Reykjavík

Skoða upprunalega vefinnFrá 7.200 kr.

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Lýsing

Lesa meira

6. sýning

Frank stendur með tvo plastpoka í anddyri glæsiíbúðar sinnar og Katarínu. Í öðrum pokanum eru nýir skór, í hinum öskuker móður hans, sem á að jarðsetja daginn eftir. Von er á bróður Franks og mágkonu, en þau afboða komu sína. Til að létta þrúgandi stemninguna, bjóða hjónin nágrönnum sínum í heimsókn. Við tekur drykkja og usli, sem opna gömul sár og leysa úr læðingi bældar langanir. Úr verður ógleymanleg erfidrykkja, með óljósum leikreglum, svörtum húmor og kostulegum uppákomum. Í hlutverkum Franks og Katarínu eru Hilmir Snær Guðnason og Vala Kristín Eiríksdóttir en nágranna þeirra leika þau Haraldur Ari Stefánsson og Íris Tanja Flygenring.

Höfundur: Lars Norén

Þýðing: Hlín Agnarsdóttir

Leikstjóri: Stefán Jónsson

Leikmynd: Börkur Jónsson

Búningar: Helga I. Stefánsdóttir

Leikarar:

Haraldur Ari Stefánsson

Hilmir Snær Guðnason

Íris Tanja Flygenring

Vala Kristín Eiríksdóttir

Hvar

Borgarleikhúsið

Listabraut 3, 103 Reykjavík, Reykjavík

Skoða alla viðburði á þessum stað