Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
JÓLAPAKKARNIR
Fjölskyldan

JÓLAPAKKARNIR

Laugardagur, 5. desember 2026 · 14:00Leikhúsið í Kópavogi, Funalind 2

Skoða upprunalega vefinnFrá 2.500 kr.

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Lýsing

Lesa meira

JÓLAPAKKARNIR

Skemmtilegt og hjartnæmt jólaleikrit fyrir alla fjölskylduna.

Það er langt liðið á aðfangadagskvöld þegar jólapakkarnir vakna til lífsins og furða sig á því að það sé enn ekki búið að opna þá! Hvar eru allir?

Einn pakki er öðruvísi en hinir og þegar hann hverfur verður uppi fótur og fit.

Misskilningur, tortryggni og ásakanir ganga á víxl og ekki skánar ástandið þegar skrímsli virðist leynast á meðal pakkanna.

Nú þurfa pakkarnir að standa saman, finna hinn týnda og sigrast á skrímslinu svo töfrar jólanna glatist ekki.

Leikritið er fullt af húmor, söng, hasar og skemmtilegum karakterum. Gleðileg, litrík og hlý jólaupplifun fyrir börn og fullorðna!