Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Fjölskyldan

Mikið fyrir börn

Laugardagur, 28. nóvember 2026 · 15:00Tjarnarbíó · Reykjavík

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Sæktu iPhone-appið

Flytjendur

Lýsing

Lesa meira

1. sýning

Sviðslistahópurinn Animato kynnir:

Mikið fyrir börn.

Bráðum koma blessuð jólin með kökur og kæti, gjafir og glimmer. Grýla hlakkar mikið til, enda eru jólin hátíð barnanna – og hún er mikið fyrir börn. Stekkjastaur langar mest til þess að hafa það náðugt í hellinum um jólin, en Leppur bróðir hans þráir að fara til byggða og setja í skóinn hjá öllum krökkunum.

Grýlu finnst báðar þessar hugmyndir út í hött en kannski tekst sonum hennar að leika á hana. Tóta litla bíður spennt eftir fyrsta jólasveininum. Hún er með langan (eiginlega mjög langan) lista yfir gjafirnar sem hún vill fá. Kannski fær hún bara kartöflu til að narta í. Eða verður nartað í hana?

Aðstandendur:

Höfundur: Þórunn Guðmundsdóttir

Leikstjóri: Þórunn Lárusdóttir

Söngvarar: Eggert Reginn Kjartansson, Gunnlaugur Bjarnason, Margrét Björk Daðadóttir og Vera Hjördís Matsdóttir

Leikmynd og búningar: Bryndís Ósk Þ. Ingvarsdóttir

Píanóleikari: Herdís Ágústa Linnet

Jólasöngleikur fyrir alla fjölskylduna. Hæfilega hryllilegur, þjóðlegur og fyndinn.

Viðbótarupplýsingar

Búið til með gervigreind

Sjálfvirkar tillögur sem haldið er aðskildum frá opinberum upplýsingum skipuleggjanda.

Sviðslistahópurinn Animato kynnir Mikið fyrir börn, jólasöngleik fyrir alla fjölskylduna í Tjarnarbíói. Grýla hlakkar til jólanna, Stekkjastaur vill hafa það náðugt í hellinum en Leppur vill fara til byggða og setja í skóinn. Tóta litla bíður spennt eftir fyrsta jólasveininum. Höfundur er Þórunn Guðmundsdóttir og leikstjóri Þórunn Lárusdóttir. Hæfilega hryllilegur, þjóðlegur og fyndinn.

LeikhúsSviðslistirFjölskyldanTónlist

Heimild: tix.is