Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Sweeney Todd
Tónlist

Sweeney Todd

Laugardagur, 31. október 2026 · 19:30Salurinn · Kópavogur

Skoða upprunalega vefinnFrá 7.500 kr.

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Lýsing

Lesa meira

Salurinn || 31. október 2026

Sweeney Todd, rakarinn illi á Fleet Street, snýr aftur til Lundúna úr útlegð sinni í Ástralíu — og kemst að því að allt sem hann elskar hefur verið tekið frá honum. Í slagtogi við bökugerðarkonuna Frú Lóett nær hann hefndum og grunlausir borgarbúar gæða sér á bókstaflegum afrakstri hefndarverkanna.

Söngleikjakórinn Viðlag hefur getið sér gott orð fyrir kraftmikinn kórsöng og líflegan flutning. Kórinn ræðst nú ekki á garðinn þar sem hann er lægstur, en margrómað verk tónskáldsins Stephens Sondheim er nú fært í nýjan búning, í öflugri tónleikauppfærslu með nýjum kórútsetningum Axels Inga Árnasonar.

Í aðalhlutverkum eru Arnar Hauksson og Ylfa Marín Haraldsdóttir. Leikstjóri verksins er Vala Fannell. Höfundur texta og tónlistar er Stephen Sondheim. Handritið er eftir Hugh Wheeler, byggt á leikriti Christophers Bond. Íslensk þýðing er eftir Gísla Rúnar Jónsson.

TónlistTónleikarLeikhús

Hvar

Salurinn

Hamraborg 6, 200 Kópavogur, Kópavogur

Skoða alla viðburði á þessum stað