Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Leikhús

Lára og Ljónsi - Jólasaga

Sunnudagur, 6. desember 2026 · 11:00Þjóðleikhúsið · Reykjavík

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Sæktu iPhone-appið

Lýsing

Lesa meira

2. sýning - 2026

Hugljúft barnaleikrit um hin ástsælu Láru og Ljónsa, í aðdraganda jólanna

Bækur Birgittu Haukdal um Láru og Ljónsa njóta ómældra vinsælda hjá íslenskum börnum, og nú birtast þessar ástsælu persónur í fyrsta sinn á leiksviði. Leikverkið hentar vel yngstu áhorfendunum og er tilvalin skemmtun í aðdraganda jólanna. Birgitta Haukdal hefur samið ný lög fyrir leiksýninguna.

Verkið gerist á aðventunni og jólasveinarnir eru farnir að tínast til byggða og gefa börnum í skóinn. En eina nóttina hverfur Ljónsi, uppáhalds mjúkdýrið hennar Láru sem, eins og flestir vita, er enginn venjulegur bangsi. Hvað getur hafa orðið af Ljónsa? Getur verið að hvarf hans tengist jólasveinunum á einhvern hátt?

Saga: Birgitta Haukdal

Leikgerð: Guðjón Davíð Karlsson

Teikningar: Anahit Aleqsanian

Aldursviðmið: 2ja til 7 ára.

Viðbótarupplýsingar

Búið til með gervigreind

Sjálfvirkar tillögur sem haldið er aðskildum frá opinberum upplýsingum skipuleggjanda.

2. sýning - 2026. Hugljúft barnaleikrit um Láru og Ljónsi í aðdraganda jólanna. Leikverkið hentar yngstu áhorfendum (2-7 ára). Saga: Birgitta Haukdal. Leikgerð: Guðjón Davíð Karlsson. Teikningar: Anahit Aleqsanian.

LeikhúsFjölskyldan

Heimild: tix.is