Miðar frá
Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.
Flytjendur
Lýsing
Lesa meira
10. sýning
Grandavegur 7
Húsið að Grandavegi 7 geymir sögu þriggja kynslóða - íslenska fjölskyldusögu um brennandi ást, sáran missi og leyndarmál sem tíminn fær ekki afmáð. Fortíð og nútíð fléttast saman, minningar vakna til lífsins og mörkin á milli þess sem er raunverulegt og þess sem okkur dreymir verða óljós.
Hin unga Fríða er gædd skyggnigáfu og sér heiminn á annan hátt en við hin. Í gegnum hennar augu fáum við að upplifa sögu sem á sér djúpar rætur í íslenskum veruleika. Við fylgjumst með áhrifamikilli örlagasögu þar sem minningar, ástir, sorgir og veruleiki renna saman í eitt.
Sýning sem snertir hjartað og situr lengi í minningunni.
Sýningin er ekki við hæfi barna yngri en 13 ára.
Aðeins fáar sýningar, svo tryggðu þér miða sem fyrst.
Sýnt er í Litla leikhúsinu við Sigtún.
Miðaverð: 3.900 kr.
Hópatilboð fyrir 6 og fleiri: 3.500 kr.
Leikfélag Selfoss sýnir Grandaveg 7, byggt á skáldsögu Vigdísar Grímsdóttur og leikgerð Kjartans Ragnarssonar og Sigríðar Margrétar Guðmundsdóttur. Leikstjóri sýningarinnar er Rúnar Guðbrandsson.
Viðbótarupplýsingar
Búið til með gervigreindSjálfvirkar tillögur sem haldið er aðskildum frá opinberum upplýsingum skipuleggjanda.
Leikfélag Selfoss sýnir Grandaveg 7 í Litla leikhúsinu við Sigtún, byggt á skáldsögu Vigdísar Grímsdóttur í leikgerð Kjartans Ragnarssonar og Sigríðar Margrétar Guðmundsdóttur. Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson. Íslensk fjölskyldusaga þriggja kynslóða um ást, missi og leyndarmál, séð með augum hinnar skyggnu Fríðu. 10. sýning. Ekki við hæfi barna yngri en 13 ára. Miðaverð 3.900 kr., hópatilboð 3.500 kr. fyrir 6 eða fleiri.