Fara í efni
360expOpin beta
Skrá inn
Aftur í viðburði
Harry og Heimir - Morð skulu standa
Leikhús

Harry og Heimir - Morð skulu standa

Föstudagur, 29. janúar 2027 · 21:00Þjóðleikhúsið · Reykjavík

Vistaðu viðburðinn og við látum þig vita ef dagsetning, tími eða staður breytist.

Lýsing

Lesa meira

Kjallarinn || Þjóðleikhúsið

Ég er að spögulera…
Harrý og Heimir snúa aftur, stútfullir af grunsemdum!

Það var seint um kvöld. Afar seint um kvöld. Reyndar svo seint að það var orðið snemma morguns. Harrý Rögnvalds einkaspæjari sat á skrifstofu sinni ásamt Heimi Schnitzel, hundtryggum aðstoðarmanni sínum. (Voff voff voff). Þetta var reyndar ekki í fyrsta sinn sem Harrý og Heimir sátu saman með brakandi heilasellur.

  • „Getur verið að við fáumst næst við glæpamál í Þjóðleikhúskjallaranum?“ spurði Heimir.
  • „Það gæti hugsast, það fer eftir ýmsu“, svaraði Harrý.
  • „Ertu ekki að meina að það gæti spögulerast?“
  • „Þegiðu, Heimir.“
  • „Alveg vissi ég að þú myndir segja þetta, Harrý“, sagði Heimir.

FRÆGIR SPÆJARAR – SPRELL – GAMLIR FÉLAGAR

Nú eru liðin 16 ár síðan Harrý og Heimir ruddust fyrst upp á leiksvið með sýninguna Með öðrum morðum sem naut gífurlegra vinsælda. Áður höfðu þeir smogið inn í hlustir landsmanna með eftirminnilegum hætti í fjölda æsispennandi og sprenghlægilegra sakamálaleikrita í útvarpi. Þeir reyndust einnig afar skjávænir. Nú verður Leikhúskjallarinn, með alla sína reykmettuðu skugga og skúmaskot, vettvangur æsilegra rannsókna þeirra.

Leikarar, höfundar, spuni og hugmyndavinna: Karl Ágúst Úlfsson, Sigurður Sigurjónsson, Örn Árnason. Handrit: Karl Ágúst Úlfsson

Hvar

Þjóðleikhúsið

Hverfisgata 19, 101 Reykjavík, Reykjavík

Skoða alla viðburði á þessum stað